٭*Lillý*٭
30.10.2007 12:58:04 / lilly-

Nýtt blogg!

Æj vá þessi síða er alveg að deyja =/ það er ekki gaman =/ ætla blogga smá :D

Ég er í skólanum núna ... í eyðu, það er ekki uppáhaldið mitt en það er heldur ekkert hræðilegt :D ég stend mig bara skítsæmilega í náminu og held vel heilsu og er ekkert búin að vera veik og verð ekkkert veik :D

Ég og inginn minn erum að vinna í nýja herberginu "okkar" heima hjá mér, ég fekk semsagt viðbigginguna heima, alla fyrir mig, þar inni hef ég sófapláss fyrir 15 manns, heimabíó, risa sjónvarp, rúm náttla, svefnsófa, "topplúgu" ;) , arinn!! skrifborð með pláss fyrir heilar 2 - 3 tölvur, gólfhiti og svalir, klósettið er bara eitt skref útur herberginu..þetta gæti ekki verið betra :D

við erum ss að mála það núna svona ljósgrænt, nema arininn er dökkgrænn :D hlakkar geðveikt til að flytja þangað inn, sem gerist samt ekki fyrr en við fáum hurðina...sem verður í nóvember skilst mér.

ég skemmti mér ágætlega seinustu helgi, chillaði með inga bara á föstudeginum og fór snemma að sofa, en það þýddi bara að ég var með fullt af orku fyrir laugardaginn :D

við byrjuðum heima hjá inga, bara ég og hann fyrst. svo kom keli. Það var líka fullt af fólki þarna hjá foreldrum inga, ss sona fertuga fólka partý. Þegar við 3 vorum komin smá í glas, settumst við hjá þeim og byrjuðum að tala við gamla liðið :D og vá ég vissi ekki að það gæti orðið svona skemmtilegt, reyndar smá skandall í gangi, ein konan lét mig hringja í einhver frænda sinn sem er með mér í skóla og það var bara fyndið, smá vandræðalegt eeen fyndið.

svo fórum við til einhvers gaurs sem ég man ekki hvað hét, þar bjuggumst við við partýi en nei, þar inni voru tvær manneskjur, svavar og steina, reyndar var líka gestgjafinn og stúlka sem heitir alma heima, en þau voru lokuð inní herbergi, örugglega í barbie! þrátt fyrir fámennið skemmtum við okkur stórvel þarna, þangað til okkur var hent út og við biðum eftir taxa í 40 mínútúr í íííískalda veðrinu.

gæti verið að ég smelli myndum hérna inn af kveldinu :D bara mjög líklega :D

á eftir ætla ég að halda áfram að vera dugleg að læra, taka til í herberginu mínu VERÐ að gera það :$ svo ætlar ingi að koma og við ætum að halda áfram með herbergið okkar :D eigum eftir að mála hálfan arinn, heilann vegg og einhvað aðeins meira.

Svo bráðum ætla ég að fara mála myndir til að setja inn í nýja herbergið mitt :D ahh það verður svo kósýý :D

ég ætla að segja þetta bara fínt í bili. ég mun vonandi halda áfram að vera dúgleg að blogga...! takk fyrir mig :D

lillý kveður


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.09.2007 10:25:23 / lilly-

úf

vá ég er ekki búin að blogga í ár 8|...hehe ok kannski ekki alveg ár, en langan tíma, það er bara búið að vera klikkað að gera í skólanum og ekki tími fyrir netið :) ætla taka smá blogg á þetta eftir skóla ;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 13:10:50 / lilly-

Ingi sæti

 
Hérna sjáiði Ingann minn :* sem er sætastur í heiminum! þarna er hann á spáni, þessi mynd er lika 20 minutna gömul þegar ég er að gera þetta blogg :) hann kemur heim á laugardaginn og ég get ekki beðið...sakna þín áwst :*:* <3

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.09.2007 12:36:51 / lilly-

Blessaðan

Jæja gott fólk :) mér leiðist...er í eyðu, en ingi áwst er á msn svo það bjargast :) við erum að vinna að nýrri blog síðu saman, og ég ætlaði aðeins að auglýsa hana þó hún sé en í vinnslu, hún ætti að fara skána með tímanum bara vera dugleg að kíkja ;) en slóðin er www.blog.central.is/bulldogs-/ ástæðan fyrir því nafni er útaf því að við getum bæði gert svip þannig við lítum út eins og bulldogs :Ð mun örugglega koma þannig mynd inná síðuna í bannerinn eða einhvað uppá grínið :P en já...ég set link líka í síður og endilega verið dúgleg að skoða commenta, taka þátt í könnunum og sona :P boj :*

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 11:43:42 / lilly-

Komin heim :(

Jæja ég er þá komin heim eftir þessa stuttu ferð :( ég skemmti mér konunglega og var þetta algerlega gallalaus ferð fyrir utan hvað þetta var stutt ferð! og það versta við það að allir sem ég var með úti,,,Ingi<3 og hans foreldrar, eru enþá úti og munu vera þar bara,,já þar til næsa laugardag :'( sakna þín mestast ingi :*

Mest allan tíman var þrusu veður sem ekki var hægt að kvarta yfir... komu 1-2 dagar sem var smá skýjað. en veistu það var bara þægilegt. Við fórum tvisvar í Habeneras (mall) og ég og ingi versluðum eins og brjálæðingar, verðum bæði algerar gellur nuna :D svo fórum við tvisvar á markaðin í Las mimosas og tvisvar í Torrevieja. við borðuðum á Horacios á nánast hverju kveldi þó 2-3 annarstaðar :) Ströndin var heimsótt tvisvar og ég og ingi eins og smábörn í sjónum..:D það var ógeðslega gaman. Við uppgvötuðum Malibu í Orangejuce XD eða ég, gamallt hjá inga :P Svo fórum við í dýragarð sem heitir einhvað safari einhvað. og þar var ógeðslega gaman, sáum gírafa (sem ingi klappaði :D) simpansa, ljón, tígrisdýr, lamadýr, geitur, slöngur, skjaldbökur, strúta, svarta svani ooog maaargt fleira... svo tókum við einn dag í klessú :D byrjuðum snemma og fórum í Aqualandia, sem er vatnsrennibrautagarður, þar fórum við í allar rennibrautirnar nema barna rennibrautirnar...við fórum LÍKA í GULU OG BLÁU :D:D sem eru bröttustu rennibrautir sem ég hef séð! og hæstu, þetta var bara eins og að stökkva niður af hallgrímskirkju :D

Svo fórum við í skemmtigarðinn Terra Mitica, gerðum þó ekkert alltof mikið þar, þar sem ingi er svona freeekar tækja hræddur, og ég vildi ekki fara ein í neitt. en við fórum í tvo vatnsrússíbana með Hlyn (pabba inga) sem var bara feiknar stuð! Reeeennblotnuðum hehe. svo fór ég og ingi í ógeðslegasta draugahús í heimi!...mæli ekki með því við neinn, ég fór að grenja og öskra og langaði heim :$ Þetta var semsagt pýramíti...og þegar við löbbuðum inn tók kall á móti okkur sem reyndi að búa til magnþrungna spúkí stemningu, sem tókst sagði einhvað eins og "be careful, you will walk through a very dark and dangerous place" og opnaði svo hurð þar sem ekkert tók við nema myrkur...svo byrjuðu ógeðslegir kallar að hlaupa á eftir okkur með skóflur, svartklæddur munkur læddist fyrir aftan okkur allantíman, múmía braust útúr búri og elti okkur, kallar gripu utan um mig og gerðu ógeðsleg hljóð og svo rúsínan í pylsuendanum...þegar við vorum alveg að komast út, byrjuð að anda léttar og svona, stökk gaur útur veggnum með vélsög og hljóp á eftir okkur...þá hélt ég að ég yrði ekki eldri :D hljóp eins og geðsjúklingur hágrenjandi út :D hehe

Við fórum svo líka í gocart sem var bara stuð...400cc bílar :D sooooldið meira en hjólið mitt :Dveit nu ekkert hvernig það fór hehe en það var bara gaman! :D

Dagurinn sem ég fór heim var góður, við vöknuðum snemma í góðu veðri og fórum á markaðinn, ég keypti fullt af dóti handa sonju og ingi líka :P hann keypti sér líka einhvern hníf sem hann þarf að reyna smygla inn...svo fórum við heim og ég og ingi fórum í sund, vorum tvö alein í stórri sundlaug í góðuveðri, það var svoo kósý, svo komu reyndar einhverjir bretar oní laugina og stuttu eftir það fórum við uppúr. þá lagði ég loka hönd á a pakka niður...svo fórum við ingi tvö út að borða og fengum okkur seinustu kvöldmáltíðina saman í heila viku :'( það var Spagetti Carbonara (r sum) og kók :D eftir máltíðina komu mammans og pabbi og sóttu okkur og við fórum uppá flugvöll, ég kvaddi inga vel og lengi :'( samt ekki nóg..og af einhverjum ástæðum táraðist ég þegar hann komst ekki með mér lengra,,,svo var ég grenjandi allan tíman á flugvellinum og í fimmtíma fluginu...nei ok ekki grenjandi, en það voru alltaf að koma tár...ég veit BARA VIKA en þið vitið ekki hvað ég og ingi erum náin! :D þetta verður erfið vika...:( og ég sakna þín mestast í heimi ástin,...og reyndu að skemmta þér ekki ooof mikið úti án mín :D :* elska þig!!

komið gott í bili núna ;) later :P

 

 

gula og bláa eru þarna ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

01.09.2007 12:15:38 / lilly-

Spann

EG ER A SPANI! eg hef ekki mikinn tima herna i tessari tolvu en eg fer heim a eftir og blogga nog um span! :D see ya :*


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 12:32:32 / lilly-

ÓMÆGAAAD!!

Já ég er að fara til spánar á morgun, nánar tiltekið til einhvað las mimosas r sum sem er úthverfi við Torrevieja!! og já ég er að fara á morgun! á MORGUN!!! ég er eins og margir vita að fara með inga! og hans fjölskyldu og ég er ógeeeeðslega speeeennt :D:D:D við munum skemmta okkur svo ýkt mikið! reyndar þarf ég að læra smá úti til að dragast ekki afturúr í skóla sem mér gengur ágætlega í hingað til :D en ég hef ekkert að segja nema SPÁNN Á MORGUN!! og það er alveg nóg :P blogga feitan á eða eftir spán :* bæjów

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 16:04:40 / lilly-

stuður

jæja PEOPLE, ég er hress, þó ekkert dúndur hress, bara semí, ok nvm...

Um þessa helgi gerði ég eigi margt þó menningarnótt hafi verið í gær, bara af einhverjum ástæðum (peningamálum f. ex. ) gerði égekki neitt ásamt inga, nema hanga heima og horfa á ágætis myndir í rólegheitum, sjáum EKKERT eftir að hafa eytt menningarnóttinni í það þar sem við munum klessa henni upp við vegg á spáni og berjana eftir 5 daga :D (ss toppa menninganóttina ;) )

hiiiinsvegar á föstudag, fórum við í ágætis partý til unnars, rebekka sem er nýlent á klakanum joinaði okkur í því raidi og við skemmtum okkur ok fyrir utan að ég var edrú :D :P reyndar þurftum við sofa þar yfir nóttina því letihaugarnir nenntu ekki að labba í hinn enda hafnarfjarðar pff letiiidrusluuur.

Svo er skólinn að nálgast, meir og meir, hann er ss næsta miðvikudag, þá fer ég minn fyrsta skóladag í MK og ef þessir krakkar haga sér ekki :) þá mun ég minnast þeirra þegar ég verð orðin geðveikt rík og fræg :P ...nei ok vá biturleiki :( bara þekkji svo fáa að ég er smá hrædd... en any ways...eftir 5 daga fer ég til spánar og mun eflaust skemmta mér prittí mööts þó ég muni deyja ur öfund þegar ég fer heim en ingi heldur dvöl sinni áfram um aðra viku :'(

en ég ætla að fara skila spólunum sem við vorum að horfá í nótt :* goodBye PEOPLE!!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.08.2007 11:11:52 / lilly-

Gamlar myndir (9.bekkur)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 19:50:01 / lilly-

Ingi Rafn

Ingi Rafn Hlynsson, besti maður sem hefur komið á jörðina, fæddist 22. júlí 1988, og nei hann erekki dáinn þó þetta líti út eins og byrjun á minningargrein :)

Hann er án efa það besta sem hefur komið fyrir mig, ég ekki eftir neinu og ég vona viðverðum saman eilífu amen ;)

Ingi minn, ég elska þig svo mikið ég mundi ekki gefa þig frá mér fyrir neitt,,,ekki neitt hvortsem það væru peningar eða einhvað annað, ég elskaa allar minningarnar sem ég á með þér og veitég á eftir safna fullt af fleirum. 

ókeeei geðveikt væmið, en ég bara varð að koma þessu út, ég er að springa úr ást :) ég er nefninlega heppnust í heeeeimi!

en ok ég ætla segja þetta gott í bili.

elska þig mestast í heimi Ingi minn :*

bæbæ <3

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.08.2007 15:38:51 / lilly-

AMMLI!

ég á afmælí dag

ég á afmælí dag

ég á afmæli í daaaaag

ég á afmælí dag

 

ég er 6000 daga í dag

ég er 6000 daga í dag

ég er 6000 daga í daaaag

ég er 6000 daga í dag


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 13:50:42 / lilly-

jájá

hmmm Þessi Ágæti Ágúst Á Ávísun Á Álfa Ást Á Álfholti Átján, Ákkurat Á slaginu Átta.

 

 

 


 

 

 

Nei ok ég er hætt, núna eru tvær vikur í spán og ég er alveg að farast úr spenningi, og þrátt fyrir það heldur ingi lífi þó hann sé helmingi spenntari en ég, þar sem ég deili spennunni minni með skólanum, sem ég byrja í eftir viku, eða þá er "mótaka nýnema" kynntur fyrir okkur skólinn og svona :D

ég er í vinnuni og ég er geðveikt happy því ég var að fá nýja íbúð XD loooksins einhvað fun að gera hérna :) buin að vera með sömu ógeðslegu blokkina í margar vikur úff... en þetta er lítið sætt einbýlis hús sem ég er að fara byrja á bara núna :) á eftir fer ég aðeins fyrr úr vinnu, er aðfara með mömmu að versla skóladót og sundföt :) ég fór í plokkun og litun áðan á augabrúnirnar og þetta lítur bara vel út:)

ÉG OG INGI ERUM BÚIN AÐ VERA ÝKT DÚÚGLEG Í RÆKTINNI OG ÆTLUM BARA AÐ HALDA ÞESSU ÁFRAM, FÓRUM Í RÆKTINA Í GÆR FRÁ ÞÚST 4 - 9 R SUM OG ÆTLUM AFTUR Í KVÖLD, OG VIÐ ÆTLUM MEIRAÐSEGJA Í SUND LÍKA Í KVÖLD, ERUM EKKI BÚIN AÐ GETA ÞAÐ NÚNA ÚTAF ÞVÍ AÐ SUNDFÖTIN MÍN ERU HJÁ BIRGITTU SYSTIR INGA. EN ÉG ER AÐ FARA KAUPA Á EFTIR SVO VIÐ GETUM ÞÁ SKELLT OKKUR Í SUUUUND :D

segjum þetta fínt í bili :)

ég á víst 6000 daga afmæli á morgun :D 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 13:32:19 / lilly-

Verzlunarmannahelgiiin

jæja þá er þessi æðislega verslunarmannahelgi liðin...minns fór í veiðiferð á snæfellsnesið með Inga áwst og fjölskyldu... ég gerði ekkert svona æðisgengið eins og að fara á þjóhátíð nei...! heldur fór ég snemma að sofa dagana alla og vaknaði seint og fór að veiða :$

ég veiddi minn fyrsta fisk um helgina,,, og það var svokallaður koli, mér var sagt að hann væri ekki étin svo´eg var ógó nice og sleppti greyinu aftur, eftir að öngullinn var buinn að plokka úr honum augað :'( svo var ég skilin eftir ein á bakkanum með veiðidraslið meðan ingi fór að ná í tjaldstóla sem við gætum chillað á...beit þá ekki risafiskur á, og ég algert newbie í veiði og rétt náði að landa kvikindinu eftir nokkur tár :$ ég er ekki viss hvernig fiskur þetta var en fyrst engin var nálagt sleppti ég honum bara, ooog ingi ekki sáttur með það, því eftir þetta veiddum við 0 marga fiska í viðbót.

já við skemmtum okkur alveg vel fram að hálftólf r sum því þá þurftu húseigendur að fara sofa, við ingi ætluðum alltaf að halda áfram stuðinu þegar uppí DEMON var komið, demon er klósettlausi en þó þæginlegi bústaðurinn sem við lúlluðum í, een aldrei gekk það plan þar sem við sofnuðum eins og vöggubörn í kirðini eftir tvo, þrjá Family guy þætti.

í demon býr einhver stelpa, sem þó var ekki þar þessa helgina, svo þar inni var allt voða heimilislegt og krúttlegt, og þar var kisi!!! voðalega sætur loðinn köttur, gæti trúað einhverskonar skógarköttur, hann heitir Fren og er kallaður Frebbi...við tengdust honum sterkum böndum og var erfitt að skilja við hann eftir helgina. Týra (tíkin hans inga) og Frebbi voru samt ekki bestu vinir, soldið um kvæs og urr og krippótt bak :)

Þetta var í raunini mjög þæginleg helgi og skemmti ég mér ágætlega :) bara fínt að taka þessu svona rólega í faðmi fjölskyldu annara XD een ég þakka fyrir kewl helgi ooog ég hlakka bara til næstu verslunamannarhelgar því þá ætla ég ærlega að sletta úr klaufunum :P en ég ætla að fara vekja inga og draga hann með mér í ræktina :*

bæ í bilið fólki :*

 

*bætt við nokkrum mínútum eftir á:

-Ingi Rafn vildi EKKI vakna svo við förum ekkert í ræktina helv feitabollan, anyways ég er svöng og dauð langar í sturtu en ég þarf að liggja hreyfingarlaus við hliðiná sofandi inganum og vera bara í tölvuni :( lord help me  with this boy :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 11:13:23 / lilly-

daginn

Góðan daginn, mikið um að vera, var á voða skemmtilegu ættarmóti um helgina með Inga ætt XD sem er bara ágætis ætt, svolítið "hellisbúa" gen í þeim XD en það er bara frábært. svo er útborgunaradgur á næsta leiti, en ekki það að ég fái einhvern pening:O, allt fer í að borga miða til spánar, smá skuldir og svo inná sparíreikning til að eiga smá money á spáni :D.

síðan er verslunarmannahelgin næstu helgi, og ég er eiginlega ekki búin að plana hvað verður gert þá helgina, þar sem ég á engan pening get ég ekki farið einhvað fancy eins og á þjóðhátíð r sum, en einhvað var ingi að tala um að veiða á snæfellsnesi sem ætti bara að vera kósý :D

Svo styttist í að skólinn byrji :D ég er alveg að deyja, get ekki beðið eftir þessu. SPENNT, vá ég er spennt yfir því að byrja í skóla,, mikið nýtt, og fullt af nýju fólki og bara glærnýr staður og tími :D þó ég fái aðeins og njóta 1. og 2. skóladagsins því svo fer ég til spánar í viku :D eins og allir heimsækjendur síðunar vita nú þegar ;P Ingi plebbi verður vikunni lengur en ég :( helv**** hundakúkurinn :P eeen það verður náttúrulega alderi jafn gaman án mín, en ég fæ þá líka að fara í skólann aftur :P *vúhú!* ....er að huxa um að breyta í "um mig" um skóla XD ég er ekkert lengur í Víðó XD ég er í MK hahh :$.....

Segjum þetta fínt í bili,, blessjóóó 8)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 14:29:10 / lilly-

þessi vinna

Enn og aftur leiðist mér hérna í vinnuni, því pabbi skrapp frá og ég hef engin verkefni milli handanna atm...svo ég fór að gera einhvað á netinu og í tölvuni og ég fór að teikna í paint og leika mér í svona dæmi sem sýnir þér hvaða CELEBZ þú ert líkur XD ... og því miður ætla´eg að deila með þér celebunum OG paint dæminu 8)
Byrjaá þessari æðislegu mynd sem ég teiknaði og er nuna með í DisPlay á msn :P vandaði mig geðveikt mikið smá close up til sönnunar!
*stolt* :D
 
 
Ingi eða Ingaa?haha 
 
 
 
Svoooo er komið að celebZZ :D tjekk it out maaan
Til að Byrja með þá er Ingi nauðalíkur Britney spears XD
Fallegaaar :D
 
Beyonce er þarna ég sver!!! :D:D
 
 
OG ÞARNA við erum bara alveg eins 
 
 
 
thats it, litla systir mín er bara gjella :P 
 
 
æjj ég á fullt meira en læt þetta nægja í bili...hope u had fun XD
Lateeer
Lillý kveður8)

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3